Jón Sullenberger opnar vefsíðu., Flott hjá
honum. |
|
Jón Sullenberger opnar vefsíðu., Flott hjá
honum. |
May 31 2008, 14:10
Post #121
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 4150 Joined: 8-May 06 From: Reykjavík Member No.: 6953 |
Eða þá að "hinir" eru einfaldar, auðtrúa
sálir sem fatta ekki að Jón Gerald sýnir bara það sem hann vill sýna í,
þ.e. tilgangurinn helgar meðalið hjá honum í hefnd gegn Jón Ásgeir og co.
En Davíð Oddson, Harladur Jóhannesson og allir hinir samsærismennirnir eiga að fara á bak við lás og slá, siðblindustu og ógeðfelldustu glæpamenn sem ganga lausir í dag. Annþór er bara sakleysingi í samanburði við þá. Auðvitað sýnir fólk helst það sem það vill sýna og felur annað. Það gerðu Baugsmenn. Stjórnandi þessa vefs, besti vinur Jóns Ásgeirs, geymdi tölvupóstana hans en þeim var eytt. Og mundu að þetta fyrirtæki hans gefur sig út fyrir að vista heimasíður og öryggisafritun gagna. Í ljósi þess er varla hægt að líta á tölvupóstana sem viljandi eytt á afar hentugum tíma. Þeir vildu ekki sýna þá. (IMG:http://www.malefnin.com/ib/style_emoticons/default/smile.gif) |
| |
May 31 2008, 14:14
Post #122
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 3786 Joined: 1-May 06 Member No.: 6920 |
Auðvitað sýnir fólk helst það sem það
vill sýna og felur annað. Það gerðu Baugsmenn. Stjórnandi þessa vefs,
besti vinur Jóns Ásgeirs, geymdi tölvupóstana hans en þeim var eytt. Og
mundu að þetta fyrirtæki hans gefur sig út fyrir að vista heimasíður og
öryggisafritun gagna. Í ljósi þess er varla hægt að líta á tölvupóstana
sem viljandi eytt á afar hentugum tíma. Þeir vildu ekki sýna þá. (IMG:http://www.malefnin.com/ib/style_emoticons/default/smile.gif)
Hvað hefurðu fyrir þér í þessu? Er bara sumum heimilt að rægja, öðrum ekki? |
| |
May 31 2008, 14:15
Post #123
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 4150 Joined: 8-May 06 From: Reykjavík Member No.: 6953 |
|
| |
May 31 2008, 14:20
Post #124
| |
Málbyssa Group: Áskrift1 Posts: 1076 Joined: 5-September 03 Member No.: 613 |
Þarna er mikill munur á. Baugsmenn voru
aðeins að verjast ákærum. Og það gerðist aðeins í mörgum áföngum með löngu
millibili. Ég kannast ekki við að þeir hafi birt málskjöl að ráði nema
ákærurnar. Þetta var því allt eðlilegt. Þannig hefði verið eðlilegt ef Sullenberger hefði varið sjálfan sig og rökstutt hvers vegna hann væri saklaus og birt skjöl þar að lútandi. En Sullenberger gerði miklu meira en það. Hann misnotaði aðstöðu sína til að birta skjöl sem varða mál sem snerta Sullenberger ekki neitt og komu hvergi fram í gögnum hans sem hann færði RLS í upphafi málsins. Og hann birtir bara hlið ákæruvaldsins sem enginn fótur er fyrir að mati dómara héraðsdóm. Eins og Gestur Jónsson benti á er slík háttsemi alvarlegur glæpur í ríkjum með þróaðra réttarfar en það íslenska. Þessi er góður..... Í ríkjum með þróaðra réttarfar hefði JÁJ verið stungið í steininn fyrir misnotkun á fjármálum almenningshlutafélagsins Baugs. Öll þessi frásögn með tilvitnunum í vitnaleiðslur óg tölvupósta gefur annsi skýra mynd af hugsunarhætti Baugs hópsins. Ef þú telur að Sullenberger sé að misnota aðgang sinn að gögnum og internetinu hvað segirðu þá um misnotkun JÁJ og félaga á fólki í kringum kaupin á Vöruveltunni??? Eða segirðu fólk ljúga í vitnaleiðslum?? |
| |
May 31 2008, 14:22
Post #125
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 4150 Joined: 8-May 06 From: Reykjavík Member No.: 6953 |
Þessi er góður..... Í ríkjum með þróaðra réttarfar hefði JÁJ verið stungið í steininn fyrir misnotkun á fjármálum almenningshlutafélagsins Baugs. Öll þessi frásögn með tilvitnunum í vitnaleiðslur óg tölvupósta gefur annsi skýra mynd af hugsunarhætti Baugs hópsins. Ef þú telur að Sullenberger sé að misnota aðgang sinn að gögnum og internetinu hvað segirðu þá um misnotkun JÁJ og félaga á fólki í kringum kaupin á Vöruveltunni??? Eða segirðu fólk ljúga í vitnaleiðslum?? Ekki gleyma fjölmiðlafrumvarpinu sanngjarna. |
| |
May 31 2008, 14:24
Post #126
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 1948 Joined: 13-September 07 Member No.: 8660 |
Svo þú vilt meina að almenningur sem
les/hlustar á fjölmiðlana eigi svo að dæma í málum? Hafi síðasta orðið? Þurfum við þá nokkuð dómstólana? Það er eitt dæma eftir gildandi lögum eða dæma eftir almenningsáliti. Ættiru þá ekki að ráðast á heimagarð þinn fyrst og heimta að bandaríska réttarkerfið verði lagt niður? Kviðdómur óþarfur...múgurinn á götunni dæmir um sekt eða sakleysi. Svo getur þú ekki kvartað yfir að Gestur Jónsson eða Jakob Möller hafi ekki komið í íslenska fjölmiðla, sem verjendur í Baugsmálinu. Þeir voru alltaf í fjölmiðlum á tímabili, að setja fram sína skoðun(sem auðvitað var sú eina rétta), svo oft að maður fékk á tilfinninguna að málareksturinn væri kominn úr dómsal í fjölmiðlana. Svo voru þeir furðu lostnir, þegar dómsorð gekk svo gegn fullyrðingum þeirra. Baugsmenn hafa eingöngu lagt áherslu á að reyna að sannfæra götudómstólinn um hvað er rétt og rangt, sem virkaði vel fyrir þá í héraðsdómi hjá grunnum dómara. Dómstóll götunnar er jú sá sem þeir lifa á, og þess vegna hefur þetta samsærisvæl í þeim og grátkellingarkórinn eingöngu reynt að sanfæra hann. Td. nýjustu uppákomur þar sem þeir geta ekkert sannað um "Stóru móttökunefndina" og einkafund Styrmis og Gunnars, nema að um "óstaðfestar sögusagnir" hafi fengið þá til að bera lygar upp á nafgreinda einstaklinga og heilu starfsséttirnar. Núna eru þeir á stað sem slíkt á ekki að hafa áhrif og fljótlega kemur í ljós hvernig þeim hefur tekist til þar með slíkum vinnubrögðum. Jón Gerald er einnig að segja sína hlið mála fyrir dómsstól götunnar, eins og Baugsmenn eru búnir að vera að gera frá upphafi. Tímasetningin að setja upp síðuna er einfaldlega brilljant, ef það er hugsað til að skaða "óvinina" sem mest. Það sem skiptir máli er það sem kemur fram í lokin, dómur Hæstaréttar, og það er vandséð hvernig Baugsmenn getað bjargað almenningsálitinu, dómsstóli götunnar fyrir horn á seinasta meternum. Satt að segja ef að eitthver samsæri hefur verið í gangi gegn Baugsmönnum, sýnist mér það vera einn að helst núna. 1. Styrmis og Þorsteinssagan rekin þversum ofaní þá. - Baugsmönnum hefur ekki tekist að leggja fram neinar sannanir, og hljóta að teljast ómerkingar í því máli. 2. Stóra móttökunefndin rekin þversum ofaní þá. - Baugsmönnum hefur ekki tekist að leggja fram neinar sannanir, og hljóta að teljast ómerkingar í því máli. 3. Jón Gerald opnar heimasíðu væntalega til að reyna að hafa áhrif á dómstól götunnar, og um leið að þagga niður í Baugurum. Á bak við samsærið gæti kaupmenn hinna stórmarkaðanna staðið, með öllum hinum sem Baugsmenn hugnast ekki. Styrmir,Þorsteinn, Elín og Haraldur hafa geymt málin sín þar til nú, og fengið einhverja til að minna Karl Th. og síðan Jóhann Hauks og Reyni Trausta á "óstaðfestu sögusagnirnar" sem stukku á agnið af þekktri einfeldni, og gerðu sér og sínum sennilega einn mesta óleik sem var hægt á þessum tímapunkti. |
| |
Lo-Fi Version | Time is now: May 31, 2008, 14:28 |