Jón Sullenberger opnar vefsíðu., Flott hjá
honum. |
|
Jón Sullenberger opnar vefsíðu., Flott hjá
honum. |
May 31 2008, 22:57
Post #161
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 4165 Joined: 8-May 06 From: Reykjavík Member No.: 6953 |
Já, eg veit ekki. Er nokkuð svo voðalega
mikið nýtt sem Sullenberger er að segja þarna. Til að mynda þessirtölvupóstamál og meint eyðing þeirra o.s.frv... þá er búið að fjalla um það áður. Hann segir þarna á síðunni: "tölvupóstar Jóns Ásgeirs og Tryggva Jónssonar voru geymdir í litlu internetfyrirtæki í Síðumúlanum í Reykjavik sem er í eigu Guðmundar Inga Hjartarsonar, æskuvinar Jóns Ásgeirs og ber heitið Xnet" Þetta er ekkert nýtt hjá honum og reyndar mótmælt á sínum tíma að Tryggvi væri hjá sama fyrirtæki. Og JÁJ kom með ósköp eðlilega skýringu á af hverju póstar hans væru þar: En með falsaða tölvupósta, þá er þetta jafnvel athyglisverðara: ´ Þarna pantaði Gestur bara niðurstöðu sem gæti hjálpað þeim í þessu máli og það var að véfengja þessa tölvupósta. Það sætir furðu hvað það var auðvelt að rétta endurskoðunarfyrirtæki peninga og fá þá niðurstöðu eins og eftir pöntun. |
| |
May 31 2008, 22:59
Post #162
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 3798 Joined: 1-May 06 Member No.: 6920 |
Þarna pantaði Gestur bara niðurstöðu sem
gæti hjálpað þeim í þessu máli og það var að véfengja þessa tölvupósta.
Það sætir furðu hvað það var auðvelt að rétta endurskoðunarfyrirtæki
peninga og fá þá niðurstöðu eins og eftir pöntun. Þú ert snillingur í að stilla málum þannig upp að það er "no win situation" fyrir málsaðila, tortryggir allt sem menn gera. |
| |
May 31 2008, 23:00
Post #163
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 4165 Joined: 8-May 06 From: Reykjavík Member No.: 6953 |
Í ljósi þess að aðeins var sakfellt í
einum af 58 ákæruliðum gegn Jóni Ásgeiri í héraðsdómi er ljóst að ekki
hefur verið farið eftir reglunni um að aðeins skuli gefin út ákæra ef
meiri líkur eru á sakfellingu en sýknu. Svo þegar við bætist að Jón HB taldi að ekki þýddi að gefa út ákæru á Sullenberger vegna þess að líkur væri á sýknu þá fer ekkert á milli mála að maðkur er í mysunni enda var Sullenberger sakfelldur seinna þegar Sigurður Tómas gaf út á hann ákæru. Something is rotten in the State of Denmark. 58 ákæruliðir og sakfellt í einum. Mjög áhugavert. Þú ert snillingur í að stilla málum
þannig upp að það er "no win situation" fyrir málsaðila, tortryggir allt
sem menn gera. Hvernig er annað hægt þegar niðurstaðan er svona vitlaus? |
| |
May 31 2008, 23:02
Post #164
| |
Málefnafíkill Group: Notendur Posts: 8401 Joined: 17-January 04 Member No.: 1828 |
|
| |
May 31 2008, 23:02
Post #165
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 3798 Joined: 1-May 06 Member No.: 6920 |
58 ákæruliðir og sakfellt í einum. Mjög
áhugavert. Hvernig er annað hægt þegar niðurstaðan er svona vitlaus? Ef menn horfa á málin með skynsemi og sanngirni, sía burt hatrið, þá stendur lítið eftir í málsrökunum, ótrúlega lítið. Það væri gott að prófa það einu sinni, taka af sér einhver "gleraugu" sem horft er í gegnum á þetta mál. |
| |
May 31 2008, 23:05
Post #166
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 4809 Joined: 18-August 05 Member No.: 6110 |
Þarna pantaði Gestur bara niðurstöðu sem
gæti hjálpað þeim í þessu máli og það var að véfengja þessa tölvupósta.
Það sætir furðu hvað það var auðvelt að rétta endurskoðunarfyrirtæki
peninga og fá þá niðurstöðu eins og eftir pöntun. Ja, panta og panta. Allavega var niðurstaðan að "án mikillar fyrirhafnar" hefði verið hægt að gera ýmislegt. Það útaf fyrir sig finnst mér merkilegt. Þarf að skoða það betur. Spurja tölvugúrúa. En mig minnir að Sigurður Tómas hafi sagt að nánast væri ekki hægt að falsa tölvupósta. Það hýtur að vera búið að fjalla um þessa tölvupósta og meinta fölsun og trúverðugleika í áðurgegngnum dómum í þessu máli. |
| |
May 31 2008, 23:12
Post #167
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 4165 Joined: 8-May 06 From: Reykjavík Member No.: 6953 |
Ef menn horfa á málin með skynsemi og
sanngirni, sía burt hatrið, þá stendur lítið eftir í málsrökunum, ótrúlega
lítið. Það væri gott að prófa það einu sinni, taka af sér einhver
"gleraugu" sem horft er í gegnum á þetta mál. Þeir sem kalla einna hæst eftir skynsemi, sanngirni, heiðarleika og þess háttar eru þeir sem eru hvað líklegastir til að stinga menn í bakið við fyrsta tækifæri, eða allavegana þegar þeir græða eitthvað á því. Orð eiga að standa og skilningur á milli manna að halda. Þegar menn svo hafa blöffað marga í viðskiptum þá eignast þeir óvildarmenn og óvildarpunktarnir hrannast upp. Það endar alltaf með því að þeir eru teknir út, engin spurning. |
| |
May 31 2008, 23:27
Post #168
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 1962 Joined: 13-September 07 Member No.: 8660 |
Þetta er aðeins sú hlið þessa
dómsmáls sem Sullenberger vill koma á framfæri til að fegra sinn hlut og
ná sér niðri á Baugi. Vefst það virkilega fyrir þér að átta þig á því? Hvað hafa Baugsmenn verið að gera seinustu sex árin með Baugsmiðlunum sem virðast ekki vera undir þeim merkjum reknir að skila þeim hagnaði, heldur til að halda uppi einhliða áróðri í þínum anda. Ma. kemur skýrt fram hjá Jóni Gerald að hann hafi ítrekað reynt að fá sína hlið málsins skýrða í Baugsmiðlunum, án nokkurs árangurs. Finnst þér það vera eðlileg vinnubrögð fjölmiðla sem vilja láta taka sig alvarlega? Finnst þér óeðlilegt að Jón Gerald vilji koma sínni hlið á framfæri við þjóðina? Finnst þér óeðlilegt að Jón Gerald vilji ná sér niður á Baugsmönnum? Finnst þér óeðlilegt að Baugsmenn vilji ná sér niður á Jóni Gerald? Fagnar þú ekki eins og við allir hinir því að loksins færðu tækifæri að kynna þér hina hliðina á málinu frá aðilanum sem hratt atburðarrásinni af stað, svo þú getir sett upp hlutleysisgleraugun, kynnt þér báðar hliðar málsins í fyrsta skipti, og dregið þínar ályktanir út frá því? Eða er slíkt sjálfstæði ekki heimilt samkvæmt ráðningarsamninginum við Baug? |
| |
May 31 2008, 23:33
Post #169
| |
Forfallinn Group: Notendur Posts: 12169 Joined: 16-May 04 Member No.: 3449 |
Hvað hafa Baugsmenn verið að gera
seinustu sex árin með Baugsmiðlunum sem virðast ekki vera undir þeim
merkjum reknir að skila þeim hagnaði, heldur til að halda uppi einhliða áróðri í þínum anda. Ma. kemur skýrt fram hjá Jóni Gerald að hann hafi ítrekað reynt að fá sína hlið málsins skýrða í Baugsmiðlunum, án nokkurs árangurs. Finnst þér það vera eðlileg vinnubrögð fjölmiðla sem vilja láta taka sig alvarlega? Finnst þér óeðlilegt að Jón Gerald vilji koma sínni hlið á framfæri við þjóðina? Finnst þér óeðlilegt að Jón Gerald vilji ná sér niður á Baugsmönnum? Finnst þér óeðlilegt að Baugsmenn vilji ná sér niður á Jóni Gerald? Fagnar þú ekki eins og við allir hinir því að loksins færðu tækifæri að kynna þér hina hliðina á málinu frá aðilanum sem hratt atburðarrásinni af stað, svo þú getir sett upp hlutleysisgleraugun, kynnt þér báðar hliðar málsins í fyrsta skipti, og dregið þínar ályktanir út frá því? Eða er slíkt sjálfstæði ekki heimilt samkvæmt ráðningarsamninginum við Baug? Í ljósi þess hve þessi vefsíða Sullenberger er viðkvæmt mál fyrir þig hljóta menn að velta fyrir sér hver þú ert. |
| |
May 31 2008, 23:36
Post #170
| |
Málbyssa Group: Notendur Posts: 3798 Joined: 1-May 06 Member No.: 6920 |
Þeir sem kalla einna hæst eftir
skynsemi, sanngirni, heiðarleika og þess háttar eru þeir sem eru hvað
líklegastir til að stinga menn í bakið við fyrsta tækifæri, eða allavegana
þegar þeir græða eitthvað á því. Orð eiga að standa og skilningur á milli
manna að halda. Þegar menn svo hafa blöffað marga í viðskiptum þá eignast
þeir óvildarmenn og óvildarpunktarnir hrannast upp. Það endar alltaf með
því að þeir eru teknir út, engin spurning. Er það ekki "no win situation" þegar óvildin hefur alltaf verið til staðar, bara fyrir það hver maður er og hverjum maður tilheyrir ekki? |
| |
Lo-Fi Version | Time is now: June 1, 2008, 3:16 |